Færsluflokkur: Bloggar

Fyrirgefðu innilega

Fyrirgefðu innilega  Kristbjög  Blush mín er föst í því að mér finnnst vera 3 apríl

Elsku Kristbjörg

WizardElsku Kristbjörg til hamingju með daginn í gær.

Skruppum norður á Akueyri í gær og versluðum , í mögulegum og ómögulegum verslunum. Þetta eru leiðinlegustu ferðir sem ég fer í mér finnst ekki gaman að fara í búðir, fór þó í eina sem bjargaði deginum, þ.e.  Quiltbúðin , á Akureyri, hún bjargaði deginum. Fullt af Skagfirðinum ferðinni fyrir norðan. Komum heim aftur að ganga sjö í gærkvöldi. Var alveg búin á því,enda ekki það besta sem ég geri að sitja í bíl, svona lengi. Átti að fara á kóræfingu en skreyð bara upp í rúm, og var örugglega búin  að sofa lengi þegar Gummi kom uppí , ég man allaveg ekki eftir því. Sleeping

Í morgun fór ég svo á fætur rétt undir kl 7 og var komin upp á sjúkraþjálfun kl 8 og byrjaði á að fara í laugina og síðan til Fanneyjar. Á eftir kíkti ég aðeins á Ernu frænku og svo Þóru tengdamömmu. Var komin heim um hádegi. Keypti mér senseo -kaffivél , er ekki frá því að hún sé bara nokkuð góð svona fyrir einn og einn bolla. Guðjón kom heim í dag ,hann virtist frekar þreyttur,en var samt himinlifandi með klukkuna sem ég gaf honum. Fékk restin af papírunum fyrir bæði örorku matið hans og svo vottorð fyrir Dannmerkur ferðina. Loftur kíkti við í dag í góðum gír hress að vanda. Besta að fara að hætta, bestu kv og eigið góða nóttKissing

 


Hæ hæ

FootinMouth Hæ hæ , bara svona smá krot , ekkert merkilegt að ske, fórum á fætur kl 6 í morgun og var komin upp á Krók 7.30, skilaði Sigríði í fjölbraut og Guðjóni í Árskóla áður en ég fór í sjúkraþjálfun. Fanney tók vel á mjöðminni og öxlinni svo að ég fór bara beint heim og úndir sæng. Ætlaði að halla mér en það var 2 bankað og síminn hringdi 5 sinnum svo að ég gafst upp og fór fra og gekk frá endunum á lopavestinu sem ég var að prjóna. Ætla í því norður á morgun, þ.e.a.s. ef ég verð sæmileg í skrokknum. Við reynum að fara norður og versla einu sinni í mánuði

Bara af því veðrið er svo fallegt, gluggaveður


Elsku Hafdís

Hún Hafdís,elsta barnið mitt á afmæli í dag, 26 ára.Hjartanlega til hamingju með daginn eslku dúllan mín. Vonandi genur vel hjá þér þarna úti ái Austurríki.

Aðrar sem eiga afmæli í dag eru Fanney I Karlsdóttir og Fanney Holm, báð til hamingju með daginn.

Annars svo sem ekkert, náðum í krakkana upp á Krók í gær, Sigríður koin í helgar frí og Guðjón beið á skammó eftir skóla. Komum við hjá Þóru og Jóni, Þóra var að vísu ein heima, en gott að koma þar eins og alltaf. Versluðum fyrir helgina áður er við fórum heim.

Í dag alugadag átti ég að ver að sykngja í fermingarmessu uppi á Krók en treysti mér ekki til að fara að standa á pöllunum í dag. Lét mig hafa það að fara með fjölskyldunni út í fjárhús, og þvældist fyri r þeim þar. Guðjón hjálpaði líka til og það þurfti að sjálfsögðu að taka myndir að því líka einn og svo oft ef honum finnst eitthvað vera að ske, svo að hæérna koma myndir dagsins, eða brot af þeim.

 

 

 

 

 

 

 

 

 Bestu kv og takk fyrir daginnWhistling


Komin heim

Jæja bara svona rétt fyrir svefninn,smá spjall. Guðjón var frekar þreyttur og boðaði snemma.Ég fór á kóræfingu upp á Krók, það var alveg þokkalega mætt, í allar raddir. Við æfum nú bæði á þriðjudögum og fimmtudögum fram að Kirkjukvöldi, sem er í byrjun Sæluviku. Það er að byrja að koma hljómur í þessi lög , mörg hver en sum finnast mér vera alveg hræðileg ennþá. Gummi saði að Guðjón hefði verið sofnaður uppúr kl átta en það þíðir að hann hefur verið frekar þreyttur. Best að fara að halla sér, þarf á fætur 6.30 í fyrramálið,Guð gefi ykkur góða nótt.SleepingSleepingSleeping


Bræður

Guðjón kom heim í dag úr páskafríinu og var bara að ég held sæll með það. Ágúst var líka hress að vanda og þegar hann fór með pabba sínum var hann með lopapeysu, húfu, vetlinga, sokka, og heimabakaðar kökur í pokanum. Honum leist bara vel á Gutta.  Hann spilaði smá á harmonikkuna mína, og það er greynilegt að honum hefur farið mikið framm að spila.´Tók nokrar myndir af þeim bræðrum og skelli hér þessum. Bólusettum lömbin í morgun,svo að ég fór smá stund út í hús það var bara hressandi. Annars ekkert að ske, Sigríður trúlega á fiðluæfingu á Ak í dag eins og alltaf á fimmtudögum.FootinMouth


Búinn, þ.e.a.s dúkurinn

P3270001

Loskins hafðist ap klára dúkinn, er hann ekki bara góðurCrying


Sól sól sól

Frábært það er sólskin, og fallegt veður 3 stiga frost. Búin að skreppa á Krókinn í dag,senda Hafdísi pakkann sinn og snúast smá vegis. Kom við í Tánni og sótti eingirninsjalið mitt sem ég hélt að væri endanlega tínt, það var himneskt að fá það aftur´til að hafa um hálsinn. Gummi fór í klippingu og nái í paríra út af vegabréfinu hans GuðjónsAnnars bara allt í besta.Wink

Ótrúlegt, en það snjóar

Já það er enn og aftur farip að snjóa, þannig að ég hefi bara varið deginum í hefðbundin heimilisstörf, eða öllu heldur við SigríðurFrown  Við erum í dag búnar að baka fjófalda hvíta tertu, kanilsnúða, tebollur, brauðbollur og danska kexið. Já og svo riksugaði Sigríður fyrirmig og skúraði, hún er sko betri en engin.Hún er svo búin að hafa til það sem hún fer með á vistina í kvöld, svo að nú getur hún kúrt yfir sjónvarpinu. ég ætla hinsvegar að halda áfram að sauma í dúkinn sem ég er að gera. Hafið það sem best ,bless í biliWhistling

Já helgar færslan

Crying Er ekki best að skrifa stutt en laggott yfirlit yfir helgina.Laugardagur, fór nánast allur í að jafna sig eftir ferðina suður, eldaði hádegisdsmat, en skreið svo uppí sófann en Sígríður og Gummi fóru á Páska bingó í Hofsós, ætlaði að horfa  á eitthvað í sjónvarpinu en þegar ég man næst eftir var kominn einhver alllt annar þáttur, hef trúlega sofnað. Loftur á Melstað kom svo seinni partinnog stoppaði fram að kvöldmat.Kryddaði hrygginn og setti inn í ofn. Woundering Sunnudagur, fór á fætur upp úr 6,30 í morgun og í sturtu. Var komin upp á Krók rétt fyrir kl 8, Tók Ernu frænku með í messu. Eftir messuna fórum við í kaffi í safnaðarheimilinu, fór svo smá stund til Ernu á eftir. Gummi eldaði hádegismatinn. Srigríður var eins og annur unglingur og kom á fætur í hádegismatinn. Kláraði að prjóna lopapeysuna sem ég var búin að lofa Ágúst og gerði svo líka húfu í stíl.Tókum svo restina af drginum bara róleg.Happy Í dag gerðum svo sem ekki mikið og þó skruttum frameftir til Birnu og Freysteins, og stoppuðum ágætis stund, Takk fyrir frábærar móttökur. Komum við á Króknum og fengum okkur pizzu, Sigríður er dottin í sjónvarðið og Gummi úti að gefa því bestu kv og knús í bili.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir
Hrafnhildur Björk Jónsdóttir
Húsmóðir og bóndi,
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 923

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband