Hæ hæ

Ótrúlegt en satt, ekkert afmæli í dag.  'I gær fór Guðjón í æfinga-flug til Reykjavíkur, en þau  flugu frá Akureyri, Hann,Ragnheiður og Hafdís, það gekk víst bara mjög vel. Sótti hann út á skammó , þegar ég var búin á kóræfingu, Sigríður kom líka heim. Í morgun fór hann svo í skólann eins og vant er en hann var ofboðslega þurr á manninn og þungur á fætur enda enn þreyttur eftir gærdaginn, hann fór með Árna, því Ragnheiður Ásta var í fríi. það gekk bara vel. Við Sigríður fórum svo upp á Krók um hádegi en hún sótti um leifi til æfingaaksturs, og svo endurnýjaði ég ökuskírteinið, vegna þess að myndin af því var orðin ónýt. Náðum líka í tryggingapappíra fyrir ferðalagið hans Guðjóns. Komum svo við í Tískuhúsinu þar sem ég keypti mér hvíta skyrtu og svart pils fyrir tónleikana á sumardaginn fyrsta og í sæluviku. Erna frænka fór með okkur í búðina, kíktum aðeins við hjá Siggu og Kristjáni áður en við skutluðums fram í Varmahlíð þar sem Kristín Halla tók Sigríði, og Ragnheiði Silju, en þær eru á leið til Akureyrar, þær spila með Simfóníuhljómsveit Norðurlands á sunnu daginn. Gangi ykkur vel elsku stelpur. Annars bara hafið það sem best í bili, og takk fyrir kommmentin. Þau gera mikið fyrir mann.Wink

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Það er einmitt málið, það er gaman þegar fólk kommentar, enn skemmtielgra þegar úr því verður umræða í kommentakerfinu.

Fín nýja myndin af þér og til hamignju með að enginn á afmæli hehe

Linda litla, 19.4.2008 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir
Hrafnhildur Björk Jónsdóttir
Húsmóðir og bóndi,
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband