22.5.2009 | 23:00
Góður dagur. ,-)
Jæja, enn einu sinni er maður sestur niður til að pikka eitthvað. Þetta er annars búin að vera mjög góður dagur. Byrjaði á kaffi og svo kíkti ég inn á FNV, til að gá hvort niðurstöður prófanna væru komnar, og viti menn, þarna var þetta svart á hvítu. Ég nái í öllum 5 fögunum, fékk 2x8 2x9 og 1x5, svo skrítið en mestur léttirinn var af fimmunni. Tók mig svo til fyrir hádegið og lagaði smá til, svo bakaði ég 2 marmarakökur 2 sandkökur og stóra skúffuköku. Mér leið mikið betur , því nú er til með kaffinu, ef einhver skyldi kíkja inn. Seinni partinn fórum við Guðjón upp á Krók að ná í Sigríði, en hún var að koma úr Reykjavík. Við keyptum í leiðinni nýjan hjálm handa Guðjóni,svo keyptum við akríl-dúk í leiðinni til að setja yfir grænmetiskassana sem við smíðuðum í gær, kartöflurnar fóru líka niður þá. Í kvöld tókum við svo smá til mæðgurnar. Gummi er búin að vera að keyra út undan kálfunum í dag. Sauðburði er nánast lokið bara einhverjar 2-3 eftir, komin um það bil 490-500 lömb. Er ekki komið gott í bili, hafið það sem best þar til næst. Knúsur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með prófin, og allt hitt líka
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.5.2009 kl. 03:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.